.....

SollaSmára

21.08.2008 11:38:11 / solveig

síðan síðast . .

hefur mikið vatn runnið til sjávar og ég er nú 4.deildar heimsmeistari í íshokkíi, nýgift og verðandi móðir.

Við Gústi giftum okkur 06.07.'08 og fengum frábært veður á okkur. Alveg yndislegur dagur.

Ég er að vinna í Heimilistækjum á Akureyri með skólanum. Ef allt gengur upp þá verð ég Grafískur hönnuður í maí á næsta ári. Spennandi það.

Krílið er skráð 28.desember og við hjónakornin alveg að verða svolítið spennt fyrir þeim degi.

meira síðar :D

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 19:47:42 / solveig

hreinsunarsjúkdómurinn mikli

ég held ég sé gengin af göflunum.... ég var að hripa niður skemmtilegan pistil fyrir mig og þig og hina en svo þegar ég ætlaði að gera mig líklega til að staðfesta vitleysuna þá hreinsaði ég textaboxið þannig að textinn varð að engu...svo ég tók mig til og varð pirruð og skrifaði í textaboxið öðru sinni og sagðist ekki nenna að blogga vegna þess að ég hreinsaði textann í stað þess að staðfesta ... og ætlaði að staðfesta þá vitleysu en viti menn ... heilalausia gerpið ég hreinsaði í annað skipti ... þannig að ég er núna í þessum skrifðu orðum að skrifa 3 tilraunarfærsluna í dag ... þetta verð ég að segja er fremur pirrandi og ég vona svo sannarlega að ég læknist af þessum hreinsunarsjúkdómi og staðfesti þessa lélegu færslu :D .... ....en núna er ég komin í stuð ... þannig að ég held áfram og vona ennfremur að ég eyði ekki þessum texta vegna þess að þá vissulega hætti ég við að blogga og þá er aldrei að vita hvenær ég sest niður og blogga aftur ... en semsagt þá hef ég svosem ekkert verið að brasa sérstakt síðustu daga ... ég hef mest verið á fullu í skólanum og er núna að vinna í hóp sem kallar sig Kimera. Kimera er hugmyndahópur sem fær verkefni frá ímynduðum fyrirtækjum út í bæ, við að finna lausnir á hinum og þessum vandamálum. sem dæmi má nefna höfum við tekið að okkur að hanna skemmtigarð fyrir íslenskan markað...þvottakaffi....hanna nýjan íslenskan fána og nýja orðu/fálkaorðu og gerð barnabókar svo eitthvað sé nefnt :) þetta eru skemmtileg verkefni og við erum allt í senn(viðskiptavinir og starfsmenn). en núna verð ég að drífa mig að skúra ... bið að heilsa ;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

06.10.2007 10:32:17 / solveig

Heimspeki Charles Schultz

Charles Schultz er höfundur teiknimynda syrpunnar Peanuts.

Þú þarft ekki að svara spurningunum.
Lestu verkefnið og þér mun verða þetta ljóst:

1. Nefndu fimm auðugustu einstaklingana í heiminum.
2. Nefndu fimm síðustu sigurvegara í fegurðarsamkeppni Evrópu.
3. Nefndu tíu einstaklinga, sem hafa unnið Nobels verðlaunin.
4. Nefndu sex leikara og leikkonur, sem unnu Óskars verðlaunin á síðasta ári.

Hvernig gekk þér?

Niðurstaðan er, að enginn okkar man fyrirsagnir gærdagsins.
Þetta eru ekki annars flokks afreksmenn.
Þeir eru þeir bestu á sínu sviði.
En klappið deyr út.
Verðlaunin missa ljómann.
Afrekin eru gleymd.
Viðurkenningarnar og skírteinin eru grafin með eigendum sínum.

Hér eru nokkrar aðrar spurningar. Sjáðu hvernig þér gengur með þær:

1. Skrifaðu nöfnin á fimm kennurum sem hjálpuðu þér á þinni skólagöngu.
2. Nefndu þrjá vini, sem hafa hjálpað þér á erfiðum stundum.
3. Nefndu fimm einstaklinga, sem hafa kennt þér eitthvað mikilvægt.
4. Hugsaðu um fimm einstaklinga, sem kunnu að meta þig að verðleikum.
5. Hugsaðu um fimm einstaklinga, sem þér þykir gott að umgangast.

Auðveldara?

Lexían: Fólkið sem skiptir þig mestu máli í lífinu eru ekki þeir sem hafa bestu meðmælabréfin, mestu peningana eða flestu verðlaunin.
Heldur þeir sem finnst þú skipta mestu máli.

Hafðu ekki áhyggjur af því að heimurinn sé að
farast í dag. Það er nú þegar morgun í Ástralíu.
(Charles Schultz)


» 9 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 10:29:45 / solveig

réttirnar ...

Við Gústi skelltum okkur í réttir fyrir ca. 3 vikum. Það var náttúrulega bara hrein snilld :D fyrir utan það að þetta var í fyrsta skiptið sem ég fer í réttir ef ég tel ekki skiptið sem ég og Öddi bróðir komu úr göngum með 2 kindur lang síðust með auðveldasta kaflann...þá rétt um 8 ára aldurinn :D heheh Bara að fylgjast með fólkinu draga kindurnar var rosalega fyndið...þessar rollur eru svo tregar að það hálfa væri nóg. Í fyrstu ætlaði ég bara að fylgjast með þessu því ég naut þess alveg það mikið að hafa gaman af því í klukkutíma ef ekki tvo :D en svo gerðist það óútskýranlega að ég var allt í einu komin með rollu milli lappanna :D og ætli ég hafi ekki dregið svona ca 4 rollur í það heila og fékk góða viðurkenningu fyrir :D (lítinn sætan marblett á lærið :lol: Gústi aftur á móti dró jafnvel 80% af rollunum sem fóru í okkar dilk :D hahaha og var með aðeins fleiri en einn marblett á lærunum eftir það :lol: enda vanur maður þar á ferð :D Þegar allt féð var komið í dilkinn var komið að því að blanda geði við fólkið. Sumir syngjandi, flestir drekkandi og örfáir stressaðir að fara heim, allir voru í góðum gír og brosið skein af hverju einasta andliti. Frábær stemmning! Síðan kom að því að reka féð heim á leið og hófst þá ævintýri...amsk fyrir bróðir hans Gústa... hann var ríðandi ásamt fleirum (gústa m.a.) og ég fór á bíl. Nema hvað ... allt í einu sáum við gráu merina þjóta fram hjá á fleigiferð með full reiðtýgi en án Magga bróður Gústa....obbosí....við leituðum að Magga og sáum hann hlaupandi á eftir merinni :D sem betur fer ekki mikið laskaðann. Gústi náði taumhaldi á flóttamerinni og Maggi hélt áfram heim á leið eftir smávegis skvettur og prjón :D Eftir þetta tók við baukur og gleði :D við fengum dýrindis mat eftir réttirnar hjá Gullu og Hjalla á Steindyrum og um kvöldmatarleytið vorum við flest orðin vel glöð komin inn í fjós að mjólka :lol: Sumir stóðu sig með eindæmum vel en aðrir klúðruðu málunum örlítið vegna fljótfærnis og vínanda hahahaha :D En allt endaði vel að lokum :D kýrnar voru ánægðar og við komumst heim að skipta um föt áður en sjálf hátíðin byrjaði ;) Hehehe ...ef hátíð skyldi kalla :D Við semsagt horfðum á áramótaskaupið '85 og skelltum okkur síðan á réttarball :D vá hvað það er mikil snilld :D allir í lopapeysu og gallabuxum ... og allir glaðir og enginn með neitt vesen :D við fengum far á ballið því það var í þónokkurri fjarlægð frá Steindyrum og farið var heldur betur eftirminnilegt :D Við vorum 6 eða 7 á pallinum á einhverri glæsikerru :D hahaha alveg ekta sveitó :lol: Hljómsveitin ef hljómsveit skal kalla stóð sig vel þó svo að þetta hafi ekki verið það besta sem ég hef lent í :D hahahah tveir miðaldra menn, annar með skemmtarann og hinn með hristu og hljóðnema :lol: en við skeyttum engu og dönsuðum eins og brjálæðingar fram eftir nóttu :lol: Það er alveg bókað mál að þetta verður gert að árlegum viðburði á mínu heimili í framtíðinni :D

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 15:57:38 / solveig

Hálendisferð...

Sæl öll,

Ég og Gústi skelltum okkur í þrælmagnaða hálendisferð um síðustu helgi. Við byrjuðum á Aldeyjarfossi í Bárðadal, héldum svo áleiðis Sprengisandinn í átt að Landmannalaugum þar sem við gistum fyrstu nóttina. Á meðan við vorum í Landmannalaugum renndum við upp að Ljótapolli og skelltum okkur í 3 klst göngu um hraunið og enduðum á þrælmagnaðri fjallgöngu hálfa leið upp Bláhnúk (að við höldum) ;) og skelltum okkur auðvitað í pollinn með græna slíinu og skoluðum af okkur mesta svitann :D
Síðan héldum við áleiðis til Víkur í Mýrdal og svo rakleitt yfir í Þakgil sem er FRÁBÆRT tjaldstæði inn af Vík. Þar gistum við í faðmi "fjallshlíða" í logni og sólin lét sjá sig þónokkuð lengi. Það er frábær aðstaða þarna og ég mæli eindregið með þessum stað :) Frábært að sofna við lækjarniðinn og vakna í steikjandi hita og sól ;) En við létum ekki þar við sitja og héldum för okkar áfram á laugardeginum. Þá skelltum við okkur í alvöru sundlaug á Hvolsvelli ;) til að skola af okkur mesta skítinn ;) hehehe
Við héldum síðan rakleitt áfram og upp í þórsmörk og gistum í Básum. Eftir smávegis stress í bílnum komum við að þessu líka snilldar svæði og fengum logn og fínasta veður og rjóðrið er óneytanlega mjög rómantískt:haha:
Við gengum að eins um svæðið og komumst að þeirri niðurstöðu að þangað yrði reynt að fara á hverju ári.
Morguninn eftir vöknuðum við við skemmtilega róandi rigningu á tjaldinu, ekki of mikla samt, sem var mjög gott. En við ákváðum að drífa okkur af stað til þess að sjá Stakkholtsgjána, Seljalandsfoss og stoppa í Hveravöllum á leið heim Kjöl.

Gleymdi einu... við fórum inn að Eldgjá og það var geggjað fallegt ... nema boginn er hruninn :cry: haha ... segi svona .. en við náðum frábærum myndum og aldrei að vita nema ég skelli nokkrum inn við tækifæri ... annars ætluðum við jafnvel að búa til myndablogg en það er ekki orðið að veruleika ennþá ;) ég auglýsi slóðina ef af þessu verður ;)

Þetta var æðislegt ferðalag og verður án efa reynt að hafa þetta árlegan viðburð ;)

Bið að heilsa í bili


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 13:10:51 / solveig

allt á fullum snúningi þessa dagana....

já það er vissulega allt að gerast hjá mér :D

Nú er ég hætt að vinna á 118 eftir 10ára starfsaldur !! geri aðrir betur ;) hehe

Svo er ég flutt á nýjan stað sem gerir mig mun hamingjusamari en ég var :D

Ég ætla að skella mér í sumarbústað með Petru, Heiðari, Ínu og Gústa um helgina og þar verður sko flatmagað eins og klessa ;) hehe ljúft líf :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 13:30:58 / solveig

Allt gengur sinn vanagang ...

Það er ekki laust við það að ég sé hauglöt við að skrifa á þessa blessuðu blogsíðu :D

Það er svo margt annað sem hefur drifið á daga mína núna og ég eyði tíma mínum í annað en að hanga í tölvunni allan daginn ;) haha

En það er samt allt fínt að frétta ... ég hlakka til að byrja í skólanum ... og hlakka alveg óstjórnlega til þess að fara í smá sumarfrí í lok ágúst :lol:

jæja ég bið að heilsa öllum í bili ... hafið það sem allra best og ekki gera neitt sem ég mundi ekki gera ;) heheheh


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 20:10:42 / solveig

Skólinn :D

jæja nú er kominn tími fyrir blogg.....!!

Þessi tími hefur farið í heilmikil ævintýri og uppgötvanir svo fátt eitt sé nefnt.

Ég er  byrjuð að vinna í  á Akureyri ásamt því að vinna hjá 118 ;) sjúk kona græðir mikið meira en eðlileg kona ;) hehe  Mér líkar þetta mjög vel, hvort tveggja.:D

Komst ekki í skiptinámið til  :( sem er mjög sorglegt ... en ég finn mér eitthvað annað lærdómsríkt að gera ... það eru fullt af nýjum kennurum að koma að kenna við skólann svo ég verð iðin við kolann í vetur:D

Hin árlega myndlistaskóla útilega var núna um síðustu helgi og skemmtu allir sér dúndur vel 

...en alls mættu svo mikið sem ca 15 manns :D

 

sem er bara vel mætt :D Við söknuðum þeirra sem ekki komust og vonum að þau komist næsta sumar :D

Ég labbaði upp á Súlur á Sunnudeginum og það verð ég að segja var alveg fínasta afþreying...ef ég hefði ekki verið skelþunn þá hefði það verið skemmtilegra :D heheheh en við vorum 2 klst upp og 1 klst niður því við nánast hlupum :D ... við renndum okkur á skónum niður snjóskaflana þarna efst og það má segja að við hefðum skautað niður því þannig var taktíkin :D alveg eins og bjánar semsagt ;D hahaha ... ég hefði vilja hafa snjóbrettið mitt með og skella mér fram af toppnum :D það hefði verir toppurinn :lol:

 En jæja nú fer að dimma fyrr á kvöldin ... sumum til mikils ama en aðrir hoppa hæð sína í loft upp og sofna vært :D
Það þýðir bara eitt skólinn fer alveg að byrja aftur :D wwwwwúúúú´húúúú


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 19:47:10 / solveig

frústerasjón


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.05.2007 21:22:03 / solveig

Vorsýning Myndlistaskólans 2007...

Fyrri sýningardagur að kveldi kominn....
...mig langar að þakka þeim fjölmörgu sem lögðu leið sína í listagilið í dag :D Kyss ;)

Já.... sýningin í dag gekk alveg glimmrandi vel vægast sagt... það kom alveg heill hellingur af fólki og það var ekki annað að sjá að það væri mjög hrifið :D sem er alveg frábært!

Vonandi verður fólk eins duglegt að koma á morgun líka :D

Sýningin er opin milli 14 og 18 á morgun, endilega látið sjá ykkur :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.05.2007 23:22:37 / solveig

kona eða karl ?? !!

vá spurning um að vera þrjóskur eða bara plain heimskur :d lol

 http://www.youtube.com/watch?v=RGc-F_0Y7tM

og önnur spurning ....

http://www.b2.is/?sida=tengill&id=236964


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 20:12:53 / solveig

Styttist óðum í sýningu...

sæl verið þið ...

Mig langar að benda ykkur á smávegis afþreyingu um næstu helgi.

Þann 19. og 20.maí fer fram Nemendasýning Myndlistaskólans á Akureyri í húsi skólans efst í listagilinu, sennilega í kring um 14-18... nánar auglýst síðar :D

vonandi sjáið þið ykkur fært að mæta :D

 sjáumst hress:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 18:08:14 / solveig

Hvað er dygð?

-Aristóteles: Eiginleiki í fari manns sem birtist í vanbudninni breytni

-Pincoofs: dygðir og lestir eru eiginleikar sem við tökum mið af þegar við gerum upp við okkur hvort við eigum að sækjast eftir samskiptum við tiltekin einstakling eða forðast hann.

-Hvar siðferðilegu dygðir eru dygðir sem menn hafa sem menn.

Dygð:

Eiginleikar í fari mans sem birtast í vanbundinni breytni og er gott fyrir mann að hafa

Hverjar eru Dygðirnar?

Hvaða eiginleika á að efla í fari mannsins? Áráðanleika, dugnaður, góðvild, kurteisi, háttvísi, heiðarleika, hófsemi, hugrekki, hugulsemi, óhlutdrægni, réttlæti, samstarfshugur, samúð, samviskusemi, sanngirni, sjálfsagi, sjálfsstjórn, sjálfstraust, sjálfsöryggi, trúmennsku, umburðarlyndi o.fl.

Út á hvað ganga ganga þessar dygðir?

-Sérhver dygð hefur sína ákveðnu séreinkenni sem vekja ákveðnar spurningar.

-Aristóteles: dygð er meðallag tveggja lasta þar sem annar ræðst af skefjaleysi og hinn af skorti

Hafa allir sömu Dygðir?

-Nietzsche er ekki sammála því að til sé ein tegund af góðum mönnum.

-dygðirnar eru breytilegar frá einum manni til annars.

-Mannkostir geta verið breytilegur vegna þess að fólk kýs að lifa lífinu á mismunandi hátt. Hefur ólíka persónuleika og gegnir ólíkum félagslegum hlutverkum.

-Ólík þjóðfélögàólíkar dygðir.

-Þjóðfélagið myndar þann ramma verðmæta, stofnana og lífshátta sem líf einstaklinga mótast af.

-Þeir eiginleikar sem menn þurfa á að halda til að gegna hinum ólík hlutverkum eru breytilegir.

-Allir menn muna þó ávallt hafa þörf fyrir vissar dygðir.

-Jafnvel í hinum ólíkustu þjóðfélögum eiga menn við sömu grundvallarvandamálin að etja og hafa sömu grunþarfirnar.

-Það er fráleitt að halda að það ráðist aldrei af öðru en félagslegri hefð hvort tilteknir persónuleikar séu dygð eður ei.

-Helstu dygðirnar eru nauðsynlegar vegna grundvallarstaðreynda um sameiginleg tilvistarskilyrði allra manna en ekki vegna hefða í hverju þjóðfélagi fyrir sig.


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 11:09:55 / solveig

Skólinn alveg að verða búinn...

ég sem var að byrja

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 23
HTML hjálp
Fréttir